Nýjast á Local Suðurnes

Nokkrir teknir með fíkniefni – Fóru misjafnar leiðir við að fela efnin

Myndin tengist ekki umræddu máli

Fíkniefni fundust við húsleit sem lögreglan á Suðurnesjum gerði í íbúðarhúsnæði í umdæminu í fyrrinótt. Þau fundust á baðherbergi og játaði húsráðandi að hann ætti efnin. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð.

Þá komu upp nokkur vörslumál  til viðbótar þar sem smáskammtar af efnum fundust hjá ökumönnum eða farþegum í bifreiðum sem stöðvaðar voru við hefðbundið eftirlit. Fóru menn misjafnar leiðir til að reyna að fela fíkniefnin fyrir lögreglu. Til dæmis hafði einn, sem færður var á lögreglustöð, komið kannabisefnum fyrir milli fóta sér.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-500.  Í hann má hringja  til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.