Nýjast á Local Suðurnes

Vinna eftir aðgerðaáætlun vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd

Vinnumálastofnun og Reykjanesbær hafa unnið aðgerðaáætlun vegna dvalar umsækjenda um alþjóðlega vernd í sveitarfélaginu á vegum Vinnumálastofnunar.

Áætlunin samanstendur af 16 aðgerðum sem fela meðal annars í sér margs konar tómstundaúrræði fyrir fólk á öllum aldri og opnun virknimiðstöðvar undir heitinu Klúbburinn. Miðstöðin verður í húsnæði sem áður hýsti Officera-klúbbinn á Ásbrú og þar verður boðið upp á námskeið, smiðjur og fjölbreytta dagskrá. Samhliða mun Vinnumálastofnun leitast við að draga eins og kostur er úr dvöl umsækjenda um alþjóðlega vernd í Reykjanesbæ.

Aðgerðir eru þegar hafnar samkvæmt áætluninni og hafa börn umsækjenda um alþjóðlega vernd meðal annars sótt tómstundanámskeið nú í sumar sem Vinnumálastofnun kom á fót á Ásbrú. Námskeiðin hafa mælst vel fyrir og þátttaka verið afar góð en daglega hafa á bilinu 60-70 börn tekið þátt.

Barna og unglingaráð Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur hefur séð um yngri hópinn, börn 6-10 ára, og meðal annars haft körfubolta á dagskrá, föndur og margs konar leiki. Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur séð um eldri krakkana, 11-16 ára, og meðal annars farið með þeim í fótbolta, blak og margs konar hreyfingu utandyra.

Önnur aðgerð í áætluninni sem er þegar hafin snýr að samgöngumálum og er ætlað að mæta auknu álagi á almenningsamgöngur frá Ásbrú og niður í miðbæ Reykjanesbæjar.

Vinnumálastofnun mun draga úr fjölda þeirra umsækjenda um alþjóðlega vernd sem dvelur í Reykjanesbæ líkt og kostur er. Myndist svigrúm í búsetuúrræðum stofnunarinnar eða hjá sveitarfélögum sem stofnunin er með samninga við verður leitast við að fækka þeim umsækjendum sem dvelja í Reykjanesbæ.

Stofnunin vinnur nú með Reykjavíkurborg að því að finna hentuga staðsetningu fyrir einingahús fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Um leið er unnið markvisst að því að fjölga sveitarfélögum sem hýsa umsækjendurna. Nýleg sveitarfélög sem bæst hafa í hópinn sem slík móttökusveitarfélög eru Bláskógabyggð, Grindavík, Kópavogur og Vestmannaeyjar. Samhliða leitar Framkvæmdasýslan/Ríkiseignir að húsnæði vítt og breitt um landið.