Nýjast á Local Suðurnes

Hundrað þúsund farþegar hafa nýtt sér Íslandsflug Delta Airlines

Delta Airlines er eitt þeirra erlendu flugfélaga sem lendir á Keflavíkurflugvelli. Jómfrúarferð félagsins hingað til lands var farin í júníbyrjun árið 2011 það sumar voru í boði 11.832 sæti í vélum Delta. Í ár verður sætaframboðið nærri því þrisvar sinnum meira því pláss verður fyrir 32.064 farþega í Íslandsfluginu sem hófst í byrjun maí og stendur yfir fram í lok september, þetta kemur fram á vefnum túristi.is

Auglýsing: Taktu þátt í laufléttum Facebookleik Hljóðbylgjunnar

Fyrstu fjögur sumur Delta hér á landi flaug félagið með 93 þúsund farþega milli Íslands og Bandaríkjanna samkvæmt tölum frá flugfélaginu. Gera má ráð fyrir að farþegarnir séu nú þegar orðnir um tíu þúsund í ár og því hafa samtals ríflega hundrað þúsund farþegar nýtt sér áætlunarflug Delta hingað til lands frá New York. Þessi flugleið hefur verið vel nýtt því sumarið 2013 seldust 88 prósent sætanna og í fyrra var nýtingin 85 prósent. Það er aðeins meira en sætanýting Delta var í heildina þessi tvö ár.

Forsvarsmenn Delta höfðu reyndar hug á því að fjölga ferðunum ennþá meira og hefja áætlunarflug hingað frá Minneapolis en ekki fengust hentugir afgreiðslutímar við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Áfram býður Delta því eingöngu upp á ferðir hingað frá JFK flugvelli í New York.