Nýjast á Local Suðurnes

Lögreglufélag Suðurnesja vill hraða stjórnsýsluúttekt á embætti ríkislögreglustjóra

Lögreglufélag Suðurnesja sendi frá sér tilkynningu í morgun þar sem lýst er yfir stuðningi við Landssamband lögreglumanna vegna óánægju lögregluembætta landsins um störf yfirstjórnar embættis ríkislögreglustjóra.

Í tilkynningunni segir að félagið fagni því að stjórnsýsluúttekt á embætti ríkislögreglustjóra fari fram og henni beri að hraða eins og kostur er svo friður geti skapast sem fyrst um störf lögreglunnar. Líkt og önnur lögreglufélög nefnir félagið mál varðandi einkennisfatnað lögreglunnar og bílamiðstöð ríkislögreglustjóra sem hafi verið í miklum ólestri og kasti rýrð á lögregluna sem gæti komið niður á öryggi almennings. Þá skorar félagið á nýjan dómsmálaráðherra að beita sér í málinu.