Nýjast á Local Suðurnes

Framkvæmdir hefjast við gerð hringtorgs á Hringbraut – Tafir á umferð næstu vikurnar

Framkvæmdir hefjast við gerð nýs hringtorgs á gatnamótum Faxabrautar og Hringbrautar á næstu dögum og búast má við umferðatöfum vegna framkvæmdanna næstu vikurnar.

Reynt verður eftir fremsta megni að hafa gatnamótin opin á morgnana til að greiða fyrir morgun umferðinni, en að öðru leyti verða gatnamótin lokuð eftir þörfum á meðan framkvæmdum stendur og eru ökumenn eru beðnir um að virða þessar takmarkanir á umferð.

Stefnt er að framkvæmdum verði lokið í byrjun október.