Vilja auka styrki til landsliðsfólks – Leikmenn greiða hundruð þúsunda úr eigin vasa
![annalilja njardv korfub](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2018/04/annalilja-njardv-korfub-1.jpg?resize=620%2C264)
Íþrótta- og tómstundaráð Reykjanebæjar telur að nauðsynlegt sé að hækka styrki til íþróttafólks sem ferðast til útlanda á vegum landsliða sinna, en töluverður kostnaður fylgir því að taka þátt í landsliðsverkefnum sem leikmenn þurfa að greiða úr eigin vasa.
Þannig er heildarkostnaður sem fellur á leikmenn körfuknattleiksdeilda Njarðvíkur og Keflavíkur árið 2019 vel á sjöttu milljón króna.
Skipting kostnaðar er þessi:
U-15 6 leikmenn frá Njarðvík og 4 frá Keflavík. Hver leikmaður greiðir kr. 98.500
U-16 5 leikmenn frá Njarðvík. Hver leikmaður greiðir kr 172.500 fyrir NM og 246.000 fyrir EM
U-18 2 leikmenn frá Njarðvík og 4 leikmenn frá Keflavík. Hver leikmaður greiðir kr 172.500 fyrir NM og 275.000 fyrir EM kvenna og 278.000 fyrir EM karla.