Nýjast á Local Suðurnes

Vélarvana í togi á leið til Njarðvíkur

Myndin tengist fréttinni ekki beint - Mynd: Landsbjörg

Björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein frá Sandgerði var kallað út á sjötta tímanum í dag þegar tilkynning barst um vélarvana bát við innsiglinguna í Sandgerðishöfn. Tveir skipverjar eru um borð. Bjargir voru því kallaðar út á fyrsta forgangi en fljótlega kom í ljós að bilaði báturinn var um sjómílu utar og því ekki eins mikil hætta á ferðum og fyrst var talið.

Nærstaddur bátur var fyrstur á staðinn og reyndi að koma taug á milli en tókst ekki. Um hálfri klukkustund eftir að útkallið barst var björgunarskipið komið með vélarvana bátinn í tog og siglir nú með hann til hafnar í Njarðvík. Gert er ráð fyrir að björgunarskipið komi til Njarðvíkur um klukkan 22 í kvöld.