Nýjast á Local Suðurnes

Félagaskipti dregin til baka í kjölfar meintrar fölsunar

Félagaskipti Irenar Sólar Jónsdóttur úr Keflavík í Njarðvík hafa verið dregin til baka í kjölfar þess að svo virðist sem nafn Ingva Þórs Hákonarsonar, formanns körfuknattleiksdeildar Keflavíkur, hafi verið skráð á félagaskiptablað án hans vitundar.

Vísir.is greindi frá málinu, sem nú er komið á borð KKÍ, í gær, en í frétt miðilsins sagðist Ingvi ekki kannast við að hafa skrifað nafnið sitt sjálfur. Njarðvíkingar hafi því falsað undirskrift hans.

Njarðvíkingar hafa ekki viljað tjá sig um málið.