Nýjast á Local Suðurnes

Elíza á Trúnó

Tónlistakonan Elíza Newman heldur trúnó tónleika í Hljómahöll fimmtudaginn 8. febrúar næstkomandi. Er um einstakan viðburð að ræða þar sem Elíza mun í fyrsta sinn flytja lög af öllum ferli sínum og segja sögur af ævintýrum og svaðilförum um tónlistarbransann og lífið.

Gestum er velkomið að spjalla og forvitnast um leið og Elíza spilar og segir frá lögum sínum í gegnum árin allt frá Kolrössu til dagsins í dag. Með Elízu spila góðir vinir og hljómsveitafélagar, Kidda Rokk á bassa, Kalli Kolrass á trommur og Hjörtur Gunnlaugsson á gítar. Einnig er von á upprunalegum meðlimum Kolrössu sem sérstökum gestum.

Elíza Newman kom fyrst fram í sviðsljósið með hljómsveit sinni Kolrössu Krókríðandi er þær sigruðu Músiktilraunir með látum á sínum tíma og vakti hún strax athygli fyrir frumlegar lagasmíðar, kraftmikinn söng og sviðsframkomu. Hún hefur starfað við tónlist alla tíð síðan og er fjölhæfur listamaður bæði sem lagahöfundur og flytjandi.

Sem lagahöfundur hefur Elíza samið fjölda laga sem ratað hafa inn á vinsældarlista og í útvörp landsmanna í gegnum árin bæði með Kolrössu/Bellatrix og sem sóló listamaður. Hún hefur farið víða í tónlistarsköpun sinni og samið allt frá pönki til óperu til Eurovision-laga með smá stoppi á Eyjafjallajökli og nú síðast Fagradalsfjalli. Hún starfaði um árabil í London og hefur gefið út fimm plötur með Kolrössu/Bellatrix, eina með hljómsveitinni Skandinavia og fimm sóló plötur til þessa sem allar hafa hlotið lof gagnrýnenda bæði heima og erlendis. Elíza hefur spilað með fjölda listamanna í gegnum árin og má þar nefna listamenn eins og Ed Sheeran og Coldplay.

Nýjasta breiðskífa Elízu, Platan Wonder Days hefur fengið frábærar viðtökur og lof gagnrýnenda og hafa lög eins og Fagradalsfjall (you´re so pretty) og Icebergs hljómað mikið í útvarpi. Lagið Ósýnileg vakti einnig mikla athygli á síðasta ári fyrir sterk skilaboð og myndband sem tilnefnt var til íslensku tónlistarverðlaunanna 2023.