Íbúafundir um kosti og galla sameiningar Garðs og Sandgerðis

Stýrihópur sem vinnur að úttekt á kostum og göllum sameiningar sveitarfélaganna Garðs og Sandgerðisbæjar boðar til íbúafunda í báðum sveitarfélögunum. Í Garði verður fundurinn haldinn miðvikudaginn 22. febrúar í Miðgarði, sal Gerðaskóla frá kl. 19:30 – 21.30. Í Sandgerði verður fundurinn haldinn fimmtudaginn 23. febrúar í Vörðunni frá kl. 17 – 19.
Dagskrá:
1. Hvers vegna skyldu kostir og gallar við sameiningu bæjarfélaganna Garðs og Sandgerðis kannaðir?
2. Framtíðin – mögulegar sviðsmyndir kynntar.
3. Framtíðaráherslur – hver er sýn íbúa?
Fundirnir eru að sjálfsögðu öllum opnir og vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta. Íbúar beggja sveitarfélaga eru velkomnir á hvorn fundinn sem er.