Bátur kastaðist uppá bryggju

Björgunarsveitin Sigurvon í Sandgerði var kölluð út í gærkvöldi vegna báta sem voru að losna í Sandgerðishöfn, en mjög slæmt veður var á sunnanverðu landinu.

Sjö manns frá Sigurvon ásamt áhafnarmeðlimum af björgunarskipinu á Hannesi Þ. Hefstein stóðu í ströngu við að tryggja fjóra báta sem ýmist höfðu losnað eða menn höfðu áhyggjur af því að þeir væru að losna. En á tímabili héldu menn að björgunarskipið sjálft hefði slitið sig laust en í ljós kom að aðeins var kominn slaki á spottana þar.

Svo mikil voru lætin á tímabili að einn báturinn hafi kastast uppá bryggjuna og stóð þar fastur í smá stund, en mikill áhlaðandi var vegna vinds og sjávarstöðu og höfðu sumir bátar líka slitið sig lausa.
Verkefnum var lokið um klukkan 22.
Myndir: Facebook / Björgunarsveitin Sigurvon