Nýjast á Local Suðurnes

Sex Suðurnesjastúlkur í landsliðshópnum í körfuknattleik

Landsliðsþjálfari kvennalandsliðsins í körfuknattleik, Ívar Ásgrímsson, hefur valið 15 manna æfingahóp sem kemur fyrst saman þann 13. nóvember til æfinga. Keflavíkurstúlkurnar Emelía Ósk Gunnarsdóttir, Thelma Dís Ágústsdóttir og Birna Valgerður Benónýsdóttir eru nýliðar í hópnum að þessu sinni.

Landsliðið leikur gegn Slóvakíu þann 19. nóvember ytra og hér heima í Laugardalshöllinni og þann 23. nóvember gegn Portúgal og lýkur þar með undankeppninni fyrir EM á næsta ári sem hófst í nóvember 2015 eftir nýju keppnisfyrirkomulagi FIBA.

Leikmennirnir sem voru valdir í hópinn:

Berglind Gunnarsdóttir – Snæfell · 6 landsleikir

Birna Valgerður Benónýsdóttir – Keflavík · Nýliði
Elín Sóley Hrafnkelsdóttir – Valur · 2 landsleikir
Emelía Ósk Gunnarsdóttir – Keflavík · Nýliði
Gunnhildur Gunnarsdóttir – Snæfell · 25 landsleikir
Hallveig Jónsdóttir – Valur · 3 landsleikir
Ingibjörg Jakobsdóttir – Grindavík · 14 landsleikir
Ingunn Embla Kristínardóttir – Grindavík · 7 landsleikir
Pálína María Gunnlaugsdóttir – Snæfell · 35 landsleikir
Ragna Margrét Brynjarsdóttir – Stjarnan · 35 landsleikir
Ragnheiður Benónísdóttir – Skallagrímur · Nýliði
Salbjörg Ragna Sævarsdóttir – Keflavík · 1 landsleikur
Sandra Lind Þrastardóttir – Horsholms 79’ers, Danmörku · 9 landsleikir
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir – Skallagrímur · 42 landsleikir
Thelma Dís Ágústsdóttir – Keflavík · Nýliði