Nýjast á Local Suðurnes

Leit við gossvæðið enn engan árangur borið – Lögregla leitar liðsinnis almennings

Síðan í gær hefur staðið yfir leit að erlendum aðila við gosstöðvarnar og hefur lögregla nú sent frá sér tilkynningu hvar leitað er liðsinnis almennings.

Tilkynning lögreglu í heild:

Síðan í gær hefur staðið yfir leit að erlendum aðila við gosstöðvarnar og leitum við nú liðsinnis ykkar.

Um er að ræða bandarískan ríkisborgara að nafni Scott Estill. Scott er 59 ára gamall, grannvaxinn og vel á sig kominn.

Meðfylgjandi eru 2 ljósmyndir af honum og er hliðarmyndin af honum tekin í gær og er hann í þessum fatnaði sem sést á myndinni. Hann er með DSLR myndavél með litríkri hálsól og er hann í brúnum gönguskóm.

Síðast sást til hans við hraunkantinn austast í Merardölum þar sem hann varð viðskila við konu sína.

Við viljum biðja þá sem muna eftir að hafa séð hann að skoða meðfylgjandi kort af gossvæðinu. Búið er að útbúa kortið með reitum og viljum við biðja ykkur um að setja X á þann stað þar sem þið sáuð hann, eða láta okkur vita um reit og númer og senda okkur skilaboð hér á Facebook eða hafa samband við 1-1-2.