Reykjanesbær tæpum milljarði yfir áætlun

Ársreikningur Reykjanesbæjar 2024 var samþykktur í síðari umræðu í bæjarstjórn Reykjanesbæjar þann 6. maí síðastliðinn.
Jákvæð rekstrarniðurstaða nam 1.113 milljónum króna hjá A hluta bæjarsjóðs Reykjanesbæjar og 2.577 milljónum króna í samanteknum ársreikningi samstæðu A og B hluta.
Heildartekjur A-hluta bæjarsjóðs námu 27,8 milljörðum króna og rekstrargjöld námu 25 milljörðum króna. Rekstarniðurstaða fyrir afskriftir og fjármagnsliði var jákvæð um 2,8 milljarða króna en að teknu tilliti til þeirra liða var niðurstaðan jákvæð um 1.113 milljónir króna, segir í tilkynningu.
Áætlun ársins með viðauka gerði upphaflega ráð fyrir 149 miljónum króna jákvæðri rekstrarniðurstöðu bæjarsjóðs. Staðan er því mun betri en gert var upphaflega ráð fyrir, eða 964 milljóna betri niðurstaða. Ástæðan fyrir þessum mikla mun á tekjum má meðal annars rekja til umtalsverðra hærri útsvarstekna en gert var ráð fyrir.
Aukið veltufé frá rekstri var nýtt í innviðauppbyggingu vegna mikillar fjölgunar íbúa undanfarin ár og í krefjandi viðhaldsverkefni á skólahúsnæði og öðru húsnæði stofnana vegna rakaskemmda. Fjárfestingar námu 6.058 milljónum króna og söluverð eigna 415 milljónum króna í A hluta bæjarsjóðs. Í samanteknum ársreikningi A og B hluta námu fjárfestingar 8.635 milljónum króna og söluverð eigna 627 milljónum króna.
Heildartekjur samstæðu A og B hluta voru 40,5 milljarðar króna og rekstrargjöld 32,5 milljarðar króna. Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir, fjármagnsliði, skatta og hlutdeild minnihluta nam 8 milljörðum króna. Að teknu tilliti til þeirra liða var niðurstaðan jákvæð um 2.577 milljónir króna en áætlun ársins gerði ráð fyrir 1.220 milljóna króna jákvæðri rekstrarniðurstöðu hjá samstæðu sveitarfélagsins, eða 1.357 milljón króna betri rekstrarniðurstaða en gert var ráð fyrir.
Eignir A hluta bæjarsjóðs nema 52,5 milljarðar króna og eignir samstæðu A og B hluta nema 94,7 milljörðum króna. Hreint veltufé frá rekstri nam 7,4 milljörðum króna í samstæðu og 3 milljörðum króna í bæjarsjóði. Lántökur á árinu 2024 námu 2,6 milljörðum króna og nema skuldir á hvern íbúa 1,4 milljónum króna.
Skatttekjur og framlög úr jöfnunarsjóði námu 954 þúsund króna á hvern íbúa á árinu 2024 í stað 919 þúsund króna á árinu 2023.
Skuldaviðmið A hluta bæjarsjóðs skv. reglugerð nr. 502/2012 er 97,75% og samstæðu A og B hluta 105,60%.