Nýjast á Local Suðurnes

Fresta hátíðarhöldum en halda flugeldasýningu

Tekin hefur verið ákvörðun um að fresta hátíðarhöldum á vegum sveitarfélagsins Voga á Fjölskyldudögum í ár. Ákvörðunin er tekin í ljósi aðstæðna og með sóttvarnarreglur að fyrirrúmi.

Íbúar Sveitarfélagsins Voga eru hvattir til að skreyta bæinn þrátt fyrir þetta og nota hverfalitina, segir í tilkynningu á vef sveitarfélagsin. Umhverfisverðlaun sveitarfélagsins verða veitt eftir sem áður bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Þá er fólk hvatt til að gera sér glaðan dag um helgina eftir því sem aðstæður leyfa og njóta samveru með fjölskyldunni. 

Flugeldasýningin verður á sínum stað kl. 23.00 á laugardaginn og er fólk hvatt til að vera útivið og njóta sýningarinnar en virða að sjálfsögðu allar nándarreglur. 

Einn dagskrárliður af áætlaðri dagskrá Fjölskyldudaganna verður látinn halda sér en það er Ratleikurinn. Þátttakendur geta sótt smáforritið Ratleikur í snjalltækin sín og á laugardaginn verður opnað á tvo ratleiki í Vogunum. Það á að vera auðvelt að ljúka þeim án þess að þurfa að koma nálægt nokkrum manni. Þeir sem ljúka leiknum geta sótt vinning í Verslunina Vogum sem eru einn ís og eintak af Þrautabókinni (takmarkað magn af henni, nær ótakmarkað magn af ís). 

“Við vonum, og teljum okkur reyndar vita, að íbúar sýni þessu skilning og treystum á að við munum bara mæta tvíefld til leiks á Fjölskyldudögum 2021.” Segir jafnframt í tilkynningunni.