Nýjast á Local Suðurnes

Skólamatur stækkar við sig

Skólamatur ehf. hefur óskað eftir því við Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar að fá að auka byggingarmagn á lóð sinni við Iðavelli.

Óskað er auknum byggingarheimildum í samræmi við uppdrátt Riss verkfræðistofu til að byggja tveggja hæða húsnæði austur af núverandi húsi. Gert verði ráð fyrir vinnslurými á neðri hæð en skrifstofu- og starfsmannarými á efri hæð.

Erindið var sent í grenndarkynningu, sem nú er lokið. Engar athugasemdir bárust og er erindiöð því samþykkt.