Nýjast á Local Suðurnes

Logi og Björk best hjá Njarðvík

Lokahóf Körfuknattleiksdeildar UMFN fór fram í Ljónagryfjunni föstudaginn 31. mars síðastliðinn. Logi Gunnarsson og Björk Gunnarsdóttir voru valin bestu leikmenn tímabilsins í meistaraflokki karla og kvenna.

Verðlaunahafar í meistaraflokki kvenna:

Besti leikmaður: Björk Gunnarsdóttir
Verðmætasti leikmaður: Ína María Einarsdóttir
Besti varnarmaður: María Jónsdóttir
Efnilegasti leikmaður: Erna Freydís Traustadóttir

Verðlaunahafar í meistaraflokki karla:

Besti leikmaður: Logi Gunnarsson
Verðmætasti leikmaður: Björn Kristjánsson
Besti varnarmaður: Snjólfur Marel Stefánsson
Efnilegasti leikmaður: Jón Arnór Sverrisson

Mynd/ SBS: Verðlaunahafarnir ásamt þjálfurum liðanna og Friðriki Ragnarssyni formanni KKD UMFN.