Nýjast á Local Suðurnes

Konur í aðalhlutverki á sýningum í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna

Sýningarnar standa til 23. ágúst og er aðgangur ókeypis

Konur eru í aðalhlutverki á þeim sýningum sem nú standa yfir í Gryfju og Bíósal Duus safnahúsa, Klaustursaumur og Filmuprjón – textíll í höndum kvenna og Konur í sögubæjarins, þar sem skyggnst er inn í sagnaheim Mörtu Valgerðar Jónsdóttur. Báðar sýningarnar eru settar upp í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna 19. júní.

Klaustursaumur og Filmuprjón

Á sýningunni eru textílverk úr safneign Listasafns Reykjanesbæjar, sýnishorn af hannyrðum kvenna sem búsettar eru á svæðinu og hannyrðir í eigu Byggðasafns Reykjanesbæjar.

Nafn sýningarinnar vísar í breitt svið þeirra verka sem sjá má á sýningunni og má þar telja annars vegar aldagamla útsaumsaðferð og hins vegar nýlegt listaverk sem samanstendur af prjónuðum filmum. Þó flokka megi öll verk sýningarinnar sem textílverk fela þau í sér afar ólíkar nálganir, bæði hvað varðar hugmyndir, efnisval og úrvinnsluaðferðir,  enda byggja þau ýmist á handverki, myndlist eða hönnun. Oft skarast þó mörkin milli þessarra ólíku þátta og útkoman getur komið skemmtilega á óvart.

Sýningarstjóri er Inga Þórey Jóhannsdóttir.

Konur í sögu bæjarins

Á sýningunni er gengið um þorpið Keflavík á fyrstu áratugum 20. aldar í fylgd Mörtu Valgerðar Jónsdóttur Hún hafði þann hátt á að fara hús úr húsi og segja frá íbúunum eins og þeir komu henni fyrir sjónir í minningunni. Hún segir frá vinnu, áhugamálum, heilsu, útliti, persónuleika og atburðum í lífi þessa fólks. Afraksturinn er fjölbreyttur og sýnir þverskurð af samfélaginu en Marta hafði einstakt lag á að lýsa samferðafólki sínum með lifandi og fjölbreyttum hætti. Marta skrifaði rúmlega eitt hundrað greinar í tímaritið Faxa á árunum 1945-1969 og gefa þær ómetanlegt innsýn í þessa áhugaverðu sögu og ekki síðst á þátt kvenna í mótun hennar.

Sýningarstjóri er Sigrún Ásta Jónsdóttir.

Sýningarnar standa til 23. ágúst og er aðgangur ókeypis. Duus safnahús er opið kl. 12:00 til 17:00 alla daga.