Nýjast á Local Suðurnes

Sara fer vel af stað á Wodapalooza

Sara Sigmundsdóttir fer vel af stað á Wodapalooza CrossFit mótinu sem fram fer í Miami í Bandaríkjunum.

Byrjunin gefur góð fyrirheit um baráttuna sem búast má við á milli Söru og heimsmeistarans Tia-Clair Toomey á heimsleikunum sem fram fara í sumar, en þær hafa báðar fengið 188 stig af 200 mögulegum eftir fyrstu tvær greinarnar á Wodapalooza.

Verðlaunin á mótinu eru ekki af verri endanum, en sigurvegarinn fær heilar 6,4 milljónir íslenskra króna í sinn hlut. Annað sætið gefur 3,8 milljónir og þriðja sætið tæpar 2,6 milljónir. Verðlaunafé er veitt alveg niður í tíunda sætið sem gefur 128 þúsund krónur.

Keppendur geta einnig unnið sér inn meiri pening því það er boðið upp 2020 Bandaríkjadali fyrir sigur í hverri grein eða rúmlega 258 þúsund íslenskar krónur og hefur Sara þegar unnið eina greina á mótinu til þessa.