Nýjast á Local Suðurnes

Sýning á Þingvallamyndum í DUUS – Framlag Reykjanesbæjar til fullveldishátíðarinnar 2018

Sýning á Þingvallamyndum úr einkasafni Sverris Kristinssonar verður opnuð í sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar í Duus Safnahúsum, menningar og listamiðstöð Reykjanesbæjar, föstudaginn 9. febrúar kl. 18.00. Í tilefni 100 ára afmælis fullveldis á Íslandi veltum  við fyrir okkur gildi þessa helgasta staðar Íslendinga fyrir þjóðarvitundina og þá um leið áhrifum Þingvalla á myndlist þjóðarinnar.

Myndefni á sýningunni tengist allt Þingvöllum með einum eða öðrum hætti og meðal höfundanna eru helstu listamenn Íslendinga  á tuttugustu öld. Listasafn Reykjanesbæjar stendur fyrir fjölda viðburða í tengslum við þessa sýningu í samvinnu við ýmsa aðila, bæði af sagnfræðilegum og myndlistarlegum toga, sömuleiðis munu tónlist og bókmenntir einnig koma við sögu. Þessir viðburðir verða auglýstir betur á vef safnsins. Í heild sinni er verkefnið hugsað fyrir almenning, sérstaklega skólahópa og fjölskyldur. Sýningin stendur til 15.apríl n.k.

Gefin verður út vegleg sýningarskrá þar sem Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur og sýningarstjóri mun fjalla um gildi Þingvalla fyrir íslenska myndlistarmenn og Birgir Hermannsson, lektor við Háskóla Íslands, greinir frá tengslum íslenskrar þjóðmenningar og Þingvalla.

Sýningin og viðburðir tengdir henni eru framlag Reykjanesbæjar til fullveldishátíðarinnar 2018.