Nýjast á Local Suðurnes

Friðrik Ingi þjálfar U18 ára landsliðið í körfuknattleik

Körfuknattleikssamband Íslands hefur gengið frá skipun landsliðsþjálfara yngri liða fyrir komandi landsliðssumar 2017. Liðin taka öll þátt í verkefnum í sumar en framundan er stærsta landsliðssumar í sögu KKÍ, segir í tilkynningu frá sambandinu.

Einar Árni Jóhannsson er yfirþjálfari yngri landsliða KKÍ og verður hann öllum þjálfurum innan handar og hefur yfirumsjón með undirbúningi liðanna. Tveir Njarðvíkingar eru í þjálfarateymi yngri landsliða, Friðrik Ingi Rúnarsson mun þjálfa U18 ára landslið karla og Daníel Guðmundsson, þjálfari karlaliðs UMFN Þjálfar U16 landslið kvenna.