Nýjast á Local Suðurnes

Fjölbreytt dagskrá á stofutónleikum Alexöndru

Sópransöngkonan Alexandra Chernyshova, píanóleikarinn Olga Ermakova og leikona Guðrún Ásmundsdóttir bjóða upp á stofutónleika föstudaginn 29.mars kl.20:00 að Guðnýjarbraut 21.

Dagskrá verður fjölbreytt og höfðar jafnt til þeirra sem unna klassískri tónlist og þeirra sem hafa gaman af að kynnast klassiskri tónlist á ný. Flutt verða þekkt verk eftir Pjotr Tchaikovskiy, Sergei Rachmaninov, Aleksandr Aljabiev, Aleksandr Vlasov og  Dmitry Shostakovich. Guðrún Ásmundsdóttir fer með ljóð og sögur eftir þekkta íslendinga. Listarmenn munu leika og flytja tónlist í einstakri nálægð við áheyrendur. Stofutónleikar eru í samstarfi við Salon Classical tónleika í Pétursborg og tónlistarmenningarbrú milli Íslands og Rússlands “Russian Souvenir” sem styrkt er af Sendiráði Rússlands á Íslandi.

Dagskrá tónleikana fer fram á íslensku, sungið er á rússnesku og standa tónleikar í rúma klukkustund. Að tónleikum loknum er gestum boðið uppá rússneskt te og rússneskt meðlæti.