Nýjast á Local Suðurnes

Íbúar í Garði haldi sig innandyra

Íbúum í Garði er ráðlagt að halda sig innandyra og loks gluggum vegna mengunar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu sem sjá má í heild hér fyrir neðan.

Vinsamlega athugið!

Mjög há gildi SO2 mælast nú í Garðinum. Mæling kl 16:30 sýndi rúmlega 16.000 µg/m3.
Fólki er ráðlagt að dvelja innandyra, loka gluggum og slökkva á loftræstingu.