Nýjast á Local Suðurnes

Arnór Ingvi í austurrískri auglýsingu – Austurrískur liðsfélagi fer vel með íslenskuna

Njarðvíkingurinn Arnór Ingvi Traustason fer með hlutverk í stórskemmtilegri auglýsingu þar sem honum er kennt á endurvinnslutunnurnar í Austurríki. Auglýsingin er nær öll á íslensku og fer austurríski leikmaðurinn vel með málið.

Arnór Ingvi leikur í auglýsingunni ásamt félaga sínum í Rapid Wien og óhætt að segja að báðir séu með stórleik. Arnór leggur alla hlutina á minnið á íslensku og félagi hans gerir vel í að segja hlutina líka á íslensku.

Auglýsinguna má sjá hér að neðan.