Nýjast á Local Suðurnes

Njarðvík á toppinn á ný – Markalaust í Garði

Njarðvíkingar komu sér fyrir á toppi annarar deildarinnar í knattspyrnu eftir góðan sigur á Vestra á Ísafirði í dag og Víðir féll úr þriðja sæti í það sjötta eftir markalaust jafntefli gegn Huginn.

Njarðvíkingar voru á skotskónum á Ísafirði í dag, en liðið lagði Vestra að velli 2-4. Andri Fannar Freysson, Arnar Helgi Magnússon og Krystian Wiktorowicz skoruðu mörkin, auk þess sem heimamenn skoruðu sjálfsmark.

Víðir og Tindstóll skildu jöfn 0-0 í tíðindalausum leik í Garðinum á föstudagskvöld.