Mældist á 149 kílómetra hraða – Svipting og 210 þúsund króna sekt
![logreglan](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2019/03/logreglan.jpg?resize=620%2C264)
Tæplega þrjátíu ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur á undanförnum dögum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum. Sá sem hraðast ók mældist á 149 km hraða á Sandgerðisvegi þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Ökumannsins bíður 210 þúsunda króna sekt, svipting ökuleyfis í einn mánuð og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá.
Annar ökumaður sem einnig var staðinn að hraðakstri var með of marga farþega í bifreiðinni og var því kærður fyrir það brot líka.
Þá voru fáeinir teknir úr umferð vegna gruns um ölvunar- eða fíkniefnaakstur og skráningarnúmer fjarlægð af nokkrum bifreiðum sem voru ótryggðar eða óskoðaðar.