Nýjast á Local Suðurnes

Lokanir á Reykjanesbraut vegna fylgdar varaforseta Bandaríkjanna

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Lokað verður fyrir alla umferð á inn á Reykjanesbraut í austurátt vegna fylgdar varaforseta Bandaríkjanna til Reykjavíkur og svo öfugt við brottför fylgdar, eða í vesturátt. Ekki er vitað um nákvæma tímasetningu en lokað verður um það bil 5 mínútum áður en fylgdin fer á brautina og mun lokunin standa yfir í 5 mínútur eftir að fylgdin verður komin á brautina. Ekki er talið að lokunin muni sanda yfir í langan tíma.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum, en áætlað er að varaforsetinn lendi á Keflavíkurflugvelli um klukkan 13 í dag.

Þá kemur fram í tilkynningunni að sami háttur verði hafður á við brottför fylgdarinnar. Jafnframt má búast við tímabundnum umferðartöfum annars staðar á svæðinu af sömu ástæðu.  Vegfarendur eru beðnir um að sýna þolinmæði og tillitssemi.