Nýjast á Local Suðurnes

Búa sig undir eldgos

Míla vinnur nú að fyrirbyggjandi aðgerðum vegna yfirvofandi eldgoss.

Starfsmenn fyrirtækisins fóru á dögunum með auka rafstöð á fjarskiptastað fyrirtækisins á Þorbirni við Grindavík.

“Við erum þannig við öllu búin ef eldgos hefst og höfum dregið verulega úr líkunum á því að hugsanlegt rafmagnsleysi vegna eldgoss trufli fjarskipti á svæðinu.” Segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.