Fljúkandi trampólín skemmdi bíla
![´trampo](https://i0.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2018/05/´trampo.jpg?resize=620%2C264)
Eitt þeirra mörgu trampolína sem fuku af stað í hvassviðrinu á Suðurnesjum um helgina lenti á tveimur bílum og skemmdi þá talsvert.
Lögreglan á Suðurnesjum hafði á tímabili í nógu að snúast við að hefta för þessara fljúgandi muna og koma þeim tryggilega fyrir svo ekki hlytust frekari óhöpp af þeirra völdum.