Nýjast á Local Suðurnes

Ný þjónusta á Keflavíkurflugvelli fyrir fólk með ósýnilegar fatlanir

Isavia býður nú upp á nýja þjónustu fyrir fólk með ósýnilegar fatlanir eða skerðingar eins og til dæmis heilabilun og einhverfu. Fyrir fólk í þessum aðstæðum getur verið erfitt, flókið eða fyrirkvíðanlegt að fara í gegnum flugstöð. Nú stendur fólki úr þeim hópi til boða að fá sólblómaband til að bera um hálsinn á ferð sinni um Keflavíkurflugvöll. Starfsfólk í flugstöðinni er þannig upplýst um að farþegar sem bera bandið gætu þurft viðbótartíma, aukna þolinmæði, skilning og tillitssemi þegar það fer í gegn.

Hægt er að nálgast böndin á innritunarborðum afgreiðsluaðila í brottfararsal flugstöðvarinnar og á upplýsingaborði í komusal. Ekki er þörf á að panta sólblómabandið fyrir komu á flugvöllinn, segir í tilkynningu.

Nánari upplýsingar um sólblómaböndin má finna hér og hér á ensku.