Nýjast á Local Suðurnes

Kristinn einn af efnilegustu körfuknattleiksmönnum Evrópu

Kristinn Pálsson, körfuknattleiksmaður úr Njarðvík er í 70 sæti á lista heimsíðunnar Eurobasket sem telur efnilegustu leikmenn Evrópu, sem fæddir eru á því herrans ári 1997. Kristinn hefur leikið erlendis undanfarin ár, á Ítalíu og í New York.

Kristinn hefur ekki langt að sækja hæfileikana, en hann er sonur Páls Kristinssonar, sem gerði garðinn frægan með Njarðvíkingum og Grindvíkingum á árum áður og hefur verið burðarás í B-liði Njarðvíkinga sem komst í 8-liða úrslit Powerade-bikarkeppninnar á síðasta ári.