Nýjast á Local Suðurnes

Einbýlishús illa farið eftir eldsvoða

Eldur kom upp í einbýlishúsi í Garði í Suðurnesjabæ síðdegis í gær.

Tilkynnt var um svartan reyk frá húsinu og ekki vitað hvort fólk væri innilokað, segir í tilkynningu frá Brunavörnum Suðurnesja.
Tvö reykkafaragengi voru send inn strax til leitar og mikill hiti og lítið skyggni gerði þeim erfitt fyrir. Fljótlega kom þó í ljós að enginn væri innandyra.

Í heildina komu 16 slökkviliðsmenn að verkefninu, 3 dælubílar og 3 sjúkrabílar en mikill vindur gerði slökkvistarf erfitt.

Einn slökkviliðsmaður slasaðist minniháttar og fékk aðhlynningu á Hss.

Slökkvistarfi lauk um klukkan 21 en húsið er mjög illa farið eftir brunann.

Lögregla fer með rannsókn málsins.