Nýjast á Local Suðurnes

Nettómót blásið af – Fleiri árgangar fá að taka þátt næst

Nettómótið 2020 hefur verið fellt niður og mun næsta mót fara fram dagana 6.-7. mars 2021. Ákveðið hefur verið að árgangur 2009, elsti árgangur mótsins sem halda átti í ár, fái að taka þátt á næsta ári.

Tilkynningin í heild sinni:

Líkt og öllum er ljóst var Nettómótinu 7.-8. mars 2020 „frestað um ótilgreindan tíma“ skömmu eftir að neyðarstigi Almannavarna hafði verið lýst yfir vegna COVID-19. Þetta reyndist óhjákvæmileg ákvörðun eftir að afboðanir í stórum stíl tóku að berast í kjölfarið.
Þessi ákvörðun var sú erfiðasta sem mótshaldarar hafa nokkurn tíma staðið frammi fyrir og erfiðast af öllu var þó að bregðast þeim fjölmörgu börnum sem var búið að hlakka lengi til mótsins.
Unglingaráð körfuknattleiksdeilda Keflavíkur og Njarðvíkur hafa nú fundað sérstaklega um framhaldið og hvaða möguleikar séu í stöðunni. Niðurstaðan er sú að við sjáum ekki raunhæfan möguleika á því að setja mótið aftur á dagskrá á þessu ári.

Næsta Nettómót, það þrítugasta í röðinni, verður því haldið 6.-7. mars 2021. Þar mun öllu verða tjaldað til svo upplifun gesta verði sem best.

Einnig hefur verið ákveðið að árgangi 2009, sem átti að vera elsti árangur á þessu móti, verði boðið að vera með á næsta móti.

Bestu kveðjur
KarfaN, hagsmunafélag