Nýjast á Local Suðurnes

Ekið á dreng í Innri-Njarðvík – Fluttur slasaður á Landspítala

Ekið var á ungan dreng á reiðhjóli í Innri-Njarðvík í gær. Drengurinn var fluttur með sjúkrabíl á bráðadeild Landspítalans í Fossvogi.

Drengurinn slasaðist nokkuð, en hann hlaut meðal annars viðbeinsbrot og ristarbrot auk þess sem hann fótbrotnaði. Þá er hann töluvert marinn. Ljóst er að hjálmur sem drengurinn notaði bjargaði miklu, en hann brotnaði við höggið, eins og sjá má á myndinni hér fyrir ofan. Drengurinn er á batavegi.