Nýjast á Local Suðurnes

Vilja ekki að Stólarnir fái fleiri miða

Miðasala verður í dag á þriðja leik Njarðvíkur og Tindastóls í undanúrslitum körfuknattleiks karla. Engin miðasala verður á leikdag.

Tindastólsmenn eru búnir að kaupa þá miða sem þeir hafa rétt á og á Facebook-síðu Njarðvíkur segir að fólk þar á bæ vilji helst ekki láta þá hafa fleiri.
Þeir sem ætla að tryggja sér miða á leikinn verða mæta í dag á milli klukkan 17:00-19:00 í Ljónagryfjuna.