Nýjast á Local Suðurnes

Á annan tug ökumanna teknir úr umferð – Fór beint úr sýnatöku í að kasta grjóti

Mynd: Lögreglan á Suðurnesjum

Lögreglan á Suðurnesjum hefur á undanförnum dögum tekið á annan tug ökumanna úr umferð vegna gruns um vímuefnaakstur. Einn þeirra var jafnframt með útsláanlega kylfu í bifreið sinni og telst það vera brot á vopnalögum.

Annar, sem ók að auki réttindalaus var ekki fyrr kominn úr sýnatöku á lögreglustöð en til hans sást á Reykjanesbraut þar sem hann var að kasta grjóti á veginn. Hann var því vistaður á lögreglustöð.