Sex fluttir á HSS eftir bílveltu á Grindavíkurvegi
![logreglan bill](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/08/logreglan-bill1.jpg?resize=620%2C264)
Óvenju mikið hefur verið um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Bíll valt í mikilli hálku á Grindavíkurvegi og voru allir sem í honum voru, sex manns, fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar.
Á Vatnsleysustrandarvegi valt önnur bifreið, einnig í mikilli hálku. Tveir voru fluttir á HSS en reyndust ómeiddir. Loks rann bifreið út af Garðvegi og endaði á hraunbungu. Þar var einnig mikil hálka.
Auk þessa var nokkuð um árekstra. En ekki urðu teljandi meiðsl á fólki en talsvert tjón á sumum ökutækjanna.