Nýjast á Local Suðurnes

Búast við mikilli umferð á KEF um páskana

Búist er við mikilli umferð um Keflavíkurflugvöll um komandi páska og er farþegum bent á að hægt er að tryggja sér bílastæði á betri kjörum með því að bóka stæði á netinu tímanlega fyrir brottför.

Bókunarkerfið fyrir bílastæði á vefsíðu Keflavíkurflugvallar tryggir farþegum stæði um páskana. Með því að bóka stæði tímanlega bjóðast betri kjör en þegar greitt er við hlið. Þeim mun fyrr sem stæði er bókað, þeim mun betri kjör fást, segir í tilkynningu frá Isavia.

Auk bílastæðaþjónustu standa farþegum til boða aðrar samgönguleiðir til og frá Keflavíkurflugvelli. Þar má nefna ferðir með bílaleigubílumleigubílumrútum eða strætisvögnum.

Hér má finna kort af bílastæðum við Keflavíkurflugvöll og upplýsingar um samgönguþjónustu við flugstöðina.