sudurnes.net
Búast við mikilli umferð á KEF um páskana - Local Sudurnes
Búist er við mikilli umferð um Keflavíkurflugvöll um komandi páska og er farþegum bent á að hægt er að tryggja sér bílastæði á betri kjörum með því að bóka stæði á netinu tímanlega fyrir brottför. Bókunarkerfið fyrir bílastæði á vefsíðu Keflavíkurflugvallar tryggir farþegum stæði um páskana. Með því að bóka stæði tímanlega bjóðast betri kjör en þegar greitt er við hlið. Þeim mun fyrr sem stæði er bókað, þeim mun betri kjör fást, segir í tilkynningu frá Isavia. Auk bílastæðaþjónustu standa farþegum til boða aðrar samgönguleiðir til og frá Keflavíkurflugvelli. Þar má nefna ferðir með bílaleigubílum, leigubílum, rútum eða strætisvögnum. Hér má finna kort af bílastæðum við Keflavíkurflugvöll og upplýsingar um samgönguþjónustu við flugstöðina. Meira frá SuðurnesjumAðsent: Gerum þetta samanSveitarstjórnarmenn kynntu sér starfsemina í Eldey64 % fleiri fá fjárhagsaðstoð frá ReykjanesbæSuðurnesjafyrirtæki á meðal lægstbjóðenda í þriggja kílómetra tvöföldun ReykjanesbrautarKennsla í grunnskólum verður með sama sniði og í síðustu vikuNær öllu flugi til og frá Keflavíkurflugvelli frestað eða aflýstBreytingar á Heilsugæsluvakt HSS um helgarBreytingar á reglugerð munu kosta Sandgerðishöfn milljónir króna árlegaHugur í Njarðvíkingum fyrir 17. bikarúrslitaleikinnYfir þúsund krakkar mæta á Nettómótið um helgina