Flugdólgur yfirbugaður um borð í vél Icelandair
Fimm lögreglumenn voru sendir um borð í flugvél Icelandair, eftir að hún lenti á Keflavíkurflugvelli um miðnætti, til að yfirbuga og handtaka þar ölóðan bandarískan flugdólg sem sýnt hafði áhöfn og farþegum ógnandi framkomu. Þetta kemur fram á Vísi.is
Engan sakaði eftir því sem Vísir.is kemst næst, nema hvað maðurinn sjálfur skrámaðist eitthvað og gistir nú fangageymslur.