Bæta við hringtorgi á Njarðarbraut – Fulltrúi meirihluta ósáttur við staðsetningu

Hugmyndir um breytt skipulag við Njarðvíkurhöfn voru ræddar á fundi Atvinnu- og hafnarráðs Reykjanesbæjar á dögunum, þar á meðal með akstursleiðir inn og út af svæðinu um Fitjabraut og Fitjabakka, en búast má við stóraukinni umferð þar með tilkomu verslana BYKO og Krónunnar sem stefnt er að á að opna í haust.
Sigurður Guðjónsson, fulltrúi Framsóknarflokksins og þar með meirihlutans, lagði fram bókun um málið, en ljóst er, samkvæmt henni, að hann er ekki sammála þeím hugmyndum sem unnið er eftir í augnablikinu.

Mynd: Gildandi skipulag gerir ráð fyrir hringtorgi við Bergás.
Ég vil gagnrýna þær hugmyndir sem uppi eru hjá umhverfis- og framkvæmdasviði um umferð og umferðarflæði á Njarðarbraut, frá Fitjum að Fitjabakka, segir í bókun Sigurðar, en þar eru hugmyndir um að setja þriggja stúta hringtorg á mótum Njarðarbrautar og Fitjabakka samhliða því að setja upp ljósastýrð gatnamót á mótum Njarðarbrautar og Bergáss. Slík framkvæmd er langt í frá til þess fallin að bæta það umferðaröngþveiti sem nú þegar skapast á annatíma á þessari leið heldur mun hún gera hlutina verri. Ég velti því upp hvort búið sé að kynna hjá umhverfis- og skipulagsráði aðrar hugmyndir eins og að setja niður fjögurra stúta hringtorg sunnan við Olís líkt og kemur fram í gildandi skipulagi, segir Sigurður í bókuninni.
Atvinnu- og hafnarráð hefur í samtali við skipulagsfulltrúa kynnt sambærilega hugmynd um tengingu Bergáss við Njarðarbraut og við Fitjabakka, sem og tengingu inn á Olís, en slík framkvæmd mun skapa gott aðgengi og umferðarflæði á svæðinu. Sú hugmynd skapar einnig möguleikann á að áfram væri leyft að taka hægri beygju inn og hægri beygju út um núverandi gatnamót Njarðarbrautar og Fitjabakka, en banna þar vinstri beygjur. Ég tel að betur sé farið með fé borgaranna með því að vinna að endanlegri lausn mála heldur en með því að fara í skammtímaúrræði eins og felst í núverandi hugmyndum, segir í bókuninni.
Samkvæmt heimildum er framkvæmd hringtorgs við Fitjabakka komin í útboðsferli hjá Reykjanesbæ.