Nýjast á Local Suðurnes

Reykjanesbær hefur trú á að Landsnet uppfylli orkusamninga

Hæstaréttur ógilti í gær eignarnám sem Landsnet gerði á landi á Reykjanesi með heimild iðnaðar- og viðskiptaráðherra í febrúar 2014, vegna Suðurnesjalínu 2. Þessi ákvörðun mun óhjákvæmilega hafa áhrif á tímalínu framkvæmda í Helguvík, en Suðurnesjalínu 2 er ætlað að sjá kísilverum United Silicon og Thorsil fyrir raforku.

Raforka fyrir fyrsta áfanga kísilvers United Silcon í Helguvík hefur þó verið tryggð og bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ hafa ekki trú að öðru en að Landsnet muni leysa þetta mál innan þeirra tímaramma sem þarf til þess að uppfylla þá orkusamninga sem gerðir hafa verið vegna afhendingar á raforku til Suðurnesja, en áætlað er að gangsetja næsta áfanga kísilvers United Silicon árið 2019. Þá er áætlað að Thorsil hefji framkvæmdir árið 2018. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjanesbæ.

Tilkynningin í heild sinn er hér fyrir neðan:

Vegna úrskurðar Hæstaréttar að eignarnám sem Landsnet gerði á landi á Reykjanesi, með heimild iðnaðar- og viðskiptaráðherra frá febrúar 2014, vegna Suðurnesjalínu 2 væri ólögmætt hafa bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ ekki trú á öðru en að Landsnet muni leysa þetta mál innan þeirra tímaramma sem þarf til þess að uppfylla þá orkusamninga sem gerðir hafa verið vegna afhendingar á raforku til Suðurnesja.

Engar upplýsingar hafa borist frá Landsneti um tafir á raforkusamningum. Raforka til 1. áfanga United Silcon hefur verið tryggð en næsti áfangi er áætlaður árið 2019. Þá er áætlað að Thorsil hefji framkvæmdir árið 2018.