Bæjarráð Reykjanesbæjar: Nauðsynlegt að stöðva rekstur verksmiðju USi hið fyrsta

Bæjarráð Reykjanesbæjar telur nauðsynlegt, eftir að hafa rætt við forsvarsmenn United Silicon, að stöðva þurfi rekstur kísilmálmverksmiðju fyrirtækisins í Helguvík hið fyrsta, þar sem fyrirsjáanlegt er að mengun muni enn berast frá verksmiðjunni. Þetta kemur fram í bókun með fundargerð bæjarráðs, sem samþykkt var samhljóða.
Bókun bæjarráðs í heild sinni:
„Kísilmálmverksmiðja Sameinaðs sílikon hf. hefur nú verið starfrækt í 9 mánuði án þess að tekist hafi að stöðva mengun frá verksmiðjunni en mengun sem þessi gengur þvert á forsendur starfsleyfis verksmiðjunnar.
Hluti íbúa Reykjanesbæjar hefur ítrekað orðið fyrir verulegum óþægindum og vanlíðan vegna þess og slíkt er með öllu ólíðandi.
Í samtölum við forsvarsmenn fyrirtækisins hefur komið fram að nú liggi fyrir listi yfir atriði sem enn þarfnast lagfæringar og úrbóta sem taka mun vikur eða jafnvel mánuði að hrinda í framkvæmd.
Að óbreyttu má því búast við áframhaldandi mengun frá verksmiðjunni með tilheyrandi óþægindum fyrir íbúa.
Í ljósi þessa telur bæjarráð Reykjanesbæjar nauðsynlegt að rekstur verksmiðjunnar verði stöðvaður hið fyrsta, á meðan unnið er að nauðsynlegum úrbótum, svo koma megi í veg fyrir áframhaldandi mengun.“