Nýjast á Local Suðurnes

Hristi próteindrykkinn hressilega og var stöðvaður af lögreglu

Mynd: Lögreglan á Suðurnesjum

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði á dögunum bíl á Reykjanesbraut sem í voru of margir farþegar þar sem einn sat undir öðrum. Lögreglumenn veittu því enn fremur athygli að bílnum var ekið undarlega.

Bifreiðin var stöðvuð til að athuga með ástand ökumanns. Hann reyndist í góðu lagi en kvaðst hafa verið að hrista próteindrykk sinn hressilega. Var viðkomandi vinsamlegast beðinn um að aka varlega framvegis og hrista ekki drykki sína á ferð, segir í tilkynningu frá lögreglunni.