Nýjast á Local Suðurnes

Stöðva heimsóknir til íbúa Hrafnistuheimilanna

Mynd: Já.is

Sú ákvörðun hefur verið tekin að stöðva allar heimsóknir til íbúa Hrafnistuheimilanna frá og með morgundeginum, 7. mars. Þetta á við um Hrafnistuheimilin í Reykjanesbæ og á höfuðborgarsvæðinu.

Fram kemur í tilkynningu að aldrei í 60 ára sögu Hrafnistu hafi viðlíka ákvörðun verið tekin en ástæða hennar er smithætta vegna kórónuveirunnar sem dreifist nú um heimsbyggðina.

Hættustig almannavarna var fyrr í dag hækkað upp í neyðarstig. Hjúkrunarrými Hrafnistuheimilanna eru um 800 og starfa um 1500 manns hjá heimilunum. Því er ljóst að ákvörðunin mun hafa áhrif á þúsundir Íslendinga.

Í tilkynningunni segir að ákvörðunin sé stjórnendum Hrafnistu þungbær enda sé ljóst að gæti reynst mörgum heimilismönnum erfitt að fá ekki heimsóknir ættingja.