Nýjast á Local Suðurnes

Aflýsa flugi vegna veðurs

Mynd: Icelandair

Icelandair hefur aflýst öllum brottförum  frá Keflavíkurflugvelli seinni partinn í dag vegna veðurs.

Reiknað er með 18-25 m/s vindi á suðvesturfjórðungi landsins í kvöld.

Þá varar Vegagerðin við hvassviðri á Reykjanesbraut, en á vef stofnunarinnar segir að hviður geti náð allt að 35 m/s.