Nýjast á Local Suðurnes

Kynna niðurstöður úttektar á húsnæðismarkaðnum á Suðurnesjum á opnum fundi

Innri - Njarðvík

Íslandsbanki stendur fyrir kynningarfundi í Hljómahöllinni þar sem Magnús Árni Skúlason hagfræðingur hjá Reykjavik Economics mun fara yfir helstu niðurstöður nýrrar úttektar á húsnæðismarkaðnum á Suðurnesjum. Fundurinn fer fram þann 23. júní og hefst klukkan 8:30.

Sérstök áhersla verður lögð á þá stóru árganga ungs fólks sem eru á leið á húsnæðismarkað á komandi árum og velt upp spurningum því tengdu:

  • Hverjar eru þarfir ungs fólks á húsnæðismálum og hvernig verður þeim mætt?
  • Er verið að byggja eignir sem henta þessum stóra stækkandi markhópi?
  • Eru fyrstu kaupendur farnir að leita að eignum út fyrir höfuðborgarsvæðið?

Frítt er á fundinn og boðið verður upp á léttar veitingar.