Nýjast á Local Suðurnes

Þétt leikið á Grindavíkurvelli

Landsleikir í gær - Deildarleikir í kvöld og annað kvöld

Í gær fóru fram á Grindavíkurvelli opnunarleikir Evrópumóts U17 kvenna. Það fór ekki vel hjá íslensku stelpunum en þær lutu í gras fyrir þeim þýsku, 0-5. Í kvöld er svo leikið í 1. deild karla á vellinum þegar HK koma í heimsókn úr Kópavoginum. Leikurinn hefst kl. 19:15 en Grindavík situr nú í 9. sæti með 7 stig. .

Annað kvöld er svo leikur í 1. deild kvenna þar sem Grindavík mun taka á móti Álftanesi. Grindavíkurstúlkur hafa farið mjög vel af stað í sumar og eru taplausar bæði í deild og bikar og stefna eflaust ótrauðar á að halda áfram á sömu braut.