Nýjast á Local Suðurnes

Segja ósamræmi í gögnum varðandi uppbyggingu í Gróf

Ósamræmi er í gögnum sem lögð hafa verið fram í tengslum við þá uppbyggingu sem fyrirhuguð er í Grófinni á vegum Reykjanes Invest ehf., að mati Atvinnu- og hafnaráðs Reykjanesbæjar. Athugasemdir ráðsins snúa að hafnaraðstöðunni í Gróf.

Atvinnu- og hafnarráð samþykkir ekki að viðkomandi uppbygging nái inn á hafnarsvæðið í smábátahöfninni í Gróf ef hún skerðir viðleguhæfi hafnarinnar eða þjónustugetu hennar, segir í fundargerð ráðsins, sem fékk kynningu á verkefninu á dögunum. Atvinnu- og hafnarráð óskar því eftir að frekari gögn verði lögð fram sem sýna fram á að svo sé ekki áður en ráðið tekur afstöðu til viðkomandi hugmynda um uppbyggingu á svæðinu, segir í fundargerð.