Nýjast á Local Suðurnes

Strætókort hækka töluvert í verði

Árskort í almenningsvagna Reykjanesbæjar hækka um 20.000 krónur fyrir hinn almenna notanda um áramót, samkvæmt nýsamþykktri fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.

Kortin munu þannig kosta 25.000,- krónur, en námsmenn og öryrkjar greiða áfram 5.000,- fyrir árskortið í almenningsvagna.